Íslenskir badmintonspilarar á ferð og flugi
- sport008
- Jun 1
- 1 min read
Íslenskir leikmenn hafa verið að taka þátt á alþjóðlegum mótum undanfarið og munu taka þátt á mótum á næstunni. Hér að neðan er smá yfirlit yfir þátttökuna á þessum mótum:
Yonex Bonn International 2026 fór fram í Bonn í Þýskalandi dagana 27.-30.maí. Fjórir íslenskir leikmenn tóku þátt en það voru þau Guðmundur Adam Gígja, Rúnar Kristjánsson, Rakel Kristjánsdóttir og Natalía Ósk Óðinsdóttir. Hér eru hægt að finna upplýsingar um mótið og úrslit.
State Denmark Challenge 2026 fór fram í Bröndby í Danmörku dagana 28.-31.maí. Davíð Björnsson og Kristófer Finnsson tóku þátt á mótinu. Hér er hægt að finna upplýsingar um mótið og úrslit.
RSL Latvia International 2026 fer fram í Riga í Lettlandi dagana 03.-07.júní. Átta leikmenn frá Íslandi taka þátt á mótinu en það eru þau Gústav Nilsson, Eiður Broddason, Einar Óli Guðbjörnsson, Arna Karen Jóhannsdóttir, Davíð Björnsson, Kristófer Finnsson, Vignir Haraldsson og Róbert Þór Henn. Hér er hægt að finna upplýsingar um mótið.
Svo eru tvö mót síðar í sumar sem leikmenn ætla að taka þátt í en það er annars vegar Yonex Italian Open 2026 fer fram í Bolzano á Ítalíu dagana 24.-28.júní og hins vegar FZ Forza Future Series fer fram í Pessac í Frakklandi dagana 02.-05.júlí 2026.









Comments