top of page
Search
  • bsí

Eiður Ísak og Sigríður unnu Einliðaleiksmót TBR


Fyrsta mót stjörnumótaraðar BSÍ, Einliðaleiksmót TBR, var haldið föstudaginn 7.september. Eingöngu var keppt í einliðaleik í Meistaraflokki.

15 keppendur voru í karlaflokki og var það Eiður Ísak Broddason TBR sem stóð uppi sem sigurvegari mótsins eftir að hafa unnið Daníel Jóhannesson TBR í úrstlitum 21 - 16 , 17 - 21 og 21 - 18.

Daníel Jóhannesson t.v og Eiður Ísak Broddason t.h

Í einliðaleik kvenna voru sex keppendur skráðir til leiks. Sigurvegarinn í einliðaleik kvenna var Sigríður Árnadóttir TBR en hún sigraði Júlíönu Karítas Jóhannsdóttur TBR í úrslitum 21 - 15 og 21 - 11.

Júlíana Karítas Jóhannsdóttir t.v og Sigríður Árnadóttir t.h

Hægt er að sjá öll nánari úrslit frá mótinu með því að smella hér.


89 views0 comments

Recent Posts

See All
bottom of page