top of page
Search
laufey2

DÓMARANÁMSKEIÐ, 4 OKT. 2024, kl. 18:00.

Badmintonsamband Íslands heldur dómaranámskeið fyrir verðandi dómara föstudaginn 4. október 2024 í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal.

Námskeiðið hefst klukkan 18:00 og stendur til 19:30 - 20:00.

 

Kennari námskeiðsins er Laufey Sigurðardóttir.

Eftir námskeiðið þurfa þátttakendur að dæma á a.m.k. þremur mótum til að klára námskeiðið og fá afhent dómaraskírteini.

 

Þátttaka tilkynnist með því að senda tölvupóst til laufey@badminton.is                   fyrir 30 september 2024.

 

Námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu.

 

Stjórn BSÍ vill biðja öll aðildarfélög sín að hvetja fólk til að koma á námskeiðið, nauðsynlegt er að fjölga í dómarahóp okkar.

 

Þau félög sem eiga leikmenn í U17 og U19 ára landsliðshópum BSÍ eru vinsamlegast beðin um að boða þá á námskeiðið. Biðjum við félögin að tilkynna um fjölda leikmanna sem mæta munu á námskeiðið.

 

Með von um góða þátttöku - Stjórn BSÍ

 

Upplýsingar um námskeiðið veitir

Laufey Sigurðardóttir

gsm. 867-6122


104 views0 comments

Comments


bottom of page