top of page
Search

DEILDAKEPPNISDAGUR haldinn af UMFA, í dag, 3.des.´23 Fyrsta umferð í 1. og 2. deild.

  • laufey2
  • Dec 3, 2023
  • 1 min read

Í dag, sunnudaginn 3. desember heldur Afturelding fyrsta deildakeppnisdaginn í íþróttahúsinu Lágafelli, í Mosfellsbæ.


Klukkan 10 verða spilaðar tvær viðureignir í 2.deild en alls eru fjögur lið í 2.deild á þessu tímabili.

Í fyrstu umferð keppa Hamar við BH-E og UMFA við BH-R.


Klukkan 12:30 hefst svo fyrsta umferð í 1.deild en alls eru 6 lið í 1.deild.

Þar keppir BH-S við ÍA og UMFA-BH keppir við BH-K.


Mikil spenna er fyrir því að hefja deildakeppnistímabilið og vonandi fáum við marga spennandi og skemmtilega leiki. Hvetjum alla til að koma í Mosfellsbæ á sunnudaginn og fylgjast með.


 
 
 

Kommentare


©2017 BY BADMINTONSAMBAND ÍSLANDS. PROUDLY CREATED WITH WIX.COM

  • facebook
bottom of page