top of page
Search

Heimsókn til Þróttar Vogum

  • Writer: Margrét Nilsdóttir
    Margrét Nilsdóttir
  • Apr 17
  • 1 min read

Þann 7. febrúar síðastliðinn heimsótti Anna Margrét, íþróttafræðingur og yfirþjálfari badmintondeildar Aftureldingar, badmintonstarf Þróttar Vogum.


Heimsóknin hófst á örnámskeiði fyrir áhugasama foreldra sem koma að þjálfun barnanna á svæðinu, þar sem farið var yfir helstu reglur og undirstöðuatriði badminton. Að því loknu var haldin æfing fyrir fullorðinshóp félagsins með áherslu á spilaform og leiki.


Badmintonstarf Þróttar hefur verið að byggjast upp á ný frá haustinu 2024 og hefur þátttaka aukist jafnt og þétt. Í dag mæta reglulega um 25 fullorðnir og 12 börn til æfinga, og eru iðkendur á öllum aldri, allt frá 4 ára og upp í 72 ára! Æfingar eru nú haldnar tvisvar í viku hjá barna- og fullorðinshópnum.


Um jólin var haldið innanhússmót fyrir fullorðna sem tókst vel og stefnt er að því að halda annað mót á næstu vikum.


Áhugi er fyrir því að efla badmintonstarfið enn frekar á svæðinu, meðal annars með því að ráða til sín badmintonþjálfara eftir sumarið.


Badmintonsamband Íslands fagnar þessari þróun og hlakkar til að fylgjast áfram með uppbyggingu öflugs og fjölbreytts badmintonstarfs í Vogum.



 
 
 

Comments


©2017 BY BADMINTONSAMBAND ÍSLANDS. PROUDLY CREATED WITH WIX.COM

  • facebook
bottom of page