MEISTARAMÓT ÍSLANDS 2025, 24-26 APRÍL, Í TBR.
- laufey2
- Apr 2
- 1 min read
Meistaramót Íslands verður haldið dagana 24. – 26. apríl 2025.
Mótið verður haldið í samvinnu við Tennis- og badmintonfélag Reykjavíkur, í TBR húsinu við Gnoðavog 1, í Reykjavík.
Keppt verður í öllum greinum í eftirfarandi flokkum: Úrvalsdeild, 1. deild og 2. deild.
Drög að dagskrá:
Fimmtudagur 24. apríl (Sumardagurinn fyrsti) – frá kl. 9/10.
Föstudagur 25. apríl – frá kl. 16/17.
Laugardagur 26. apríl – frá 09:00.
kl. 09:00 - Úrslit í 1. og 2. deild
kl. 13:00 - Úrslit í Úrvalsdeild
Tímasetningar eru að sjálfsögðu háðar fjölda skráninga.
Þátttökugjöld eru:
6.000 krónur í einliðaleik.
5.000 krónur í tvíliða- og tvenndarleik.
Þátttöku skal tilkynna til BSÍ á bsi@badminton.is fyrir kl. 13:00 þriðjudaginn 15. apríl 2025 og því er best fyrir félög að hafa síðasta skráningardag hjá sér föstudaginn 11. apríl. Til að framkvæmd og skipulag mótsins verði sem best er mikilvægt að allir virði þennan skráningarfrest. Athugið að nota nýjasta Excel skráningarskjal/styrkleikalista BSÍ (dagsett 25. mars´25) og skrá fullt nafn keppenda og kennitölu ef bæta þarf við nýjum í leikmannaskrána.
Glæsilegt lokahóf Badmintonsambands Íslands verður haldið laugardagskvöldið
26. apríl.
Mótsstjóri er Kristján Daníelsson - Yfirdómari er Laufey Sigurðardóttir.
Með von um góða þátttöku - Stjórn BSÍ
Upplýsingar um mótið veitir
Laufey Sigurðardóttir
gsm. 867-6122

Comments