top of page
Search

MEISTARAMÓT ÍSLANDS 2026, 23-25.APRÍL

  • laufey2
  • Mar 24
  • 1 min read

Meistaramót Íslands verður haldið  dagana  23.  – 25. apríl 2026.               Mótið verður haldið í samvinnu við Badmintonfélag Hafnafjarðar, í íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnafirði.       

 

Keppt verður í öllum greinum í eftirfarandi flokkum: Úrvalsdeild, 1. deild og 2. deild.

 

Drög að dagskrá:

Fimmtudagur 23. apríl (Sumardagurinn fyrsti) – frá kl. 09:00

Föstudagur 24. apríl – frá 09:00 (ef þarf vegna fjölda keppenda)

Laugardagur 25. apríl – Úrslit hefjast kl. 09:00 í 1. og 2. deild

                                            – Úrslit í Úrvalsdeild hefjast kl. 13:00

 

Tímasetningar eru að sjálfsögðu háðar fjölda skráninga.

 

Þátttökugjöld eru:

 6.000 krónur í einliðaleik.

 5.000 krónur í tvíliða- og tvenndarleik.


Þátttöku skal tilkynna til BSÍ á laufey@badminton.is mánudaginn 13. apríl 2026  og því er best fyrir félög að hafa síðasta skráningardag hjá sér föstudaginn  10. apríl. Athugið að nota nýjasta Excel skráningarskjal/styrkleikalista BSÍ (dagsett 23. mars´26) og skrá fullt nafn keppenda og kennitölu ef bæta þarf við nýjum í leikmannaskrána.

 

Mikilvægt er að þjálfarar fari vel yfir skráninguna áður en þeir senda hana inn og tryggi að allt sé rétt og að enginn hafi gleymst. Til að framkvæmd og skipulag mótsins verði sem best er mikilvægt að allir virði skráningarfrestinn.

 

Glæsilegt lokahóf Badmintonsambands Íslands verður haldið að móti loknu, laugardagskvöldið 25. apríl. Lokahófið verður nánar auglýst þegar nær dregur.

 

Yfirdómari er Laufey Sigurðardóttir.

 

Með von um góða þátttöku - Stjórn BSÍ

Upplýsingar um mótið veitir

Laufey Sigurðardóttir

gsm. 867-6122



 
 
 

Comments


©2017 BY BADMINTONSAMBAND ÍSLANDS. PROUDLY CREATED WITH WIX.COM

  • facebook
bottom of page