top of page
Search

MEISTARAMÓT BH OG RSL 2025, 21-23.nóv.

  • laufey2
  • 12 hours ago
  • 1 min read

Meistaramót Badmintonfélags Hafnarfjarðar og RSL verður haldið í Íþróttahúsinu við Strandgötu dagana 21.-23. nóvember 2025. Mótið er hluti af mótaröð BSÍ og gefur stig á styrkleikalista sambandsins.


Keppt verður í einliða-, tvíliða- og tvenndarleik í eftirtöldum deildum:

• Úrvalsdeild

• 1. deild

• 2. deild


Keppt verður í riðlum í einliða- og tvenndarleik en hreinn útsláttur í tvíliðaleik.


Reikna má með að keppni í einliðaleik hefjist á föstudag kl.17 og ljúki á laugardag. Tvíliða og tvenndarleikir verða spilaðir á laugardag og sunnudag en tímasetningar á því fara eftir skráningu. Nánari dagskrá verður birt þriðjudaginn 18.nóvember.


Skráningarfrestur rennur út fimmtudaginn 13.nóvember.

Skráningar skulu sendar á excel skráningarformi BSÍ á netfangið bh@bhbadminton.is.


Mótsgjöld eru 6.000 krónur fyrir einliðaleik og 4.500 kr á mann í tvíliða- og tvenndarleik.


Glæsileg verðlaun að venju frá samstarfsaðilum BH. Spilað verður á keppnismottum félagsins og boðið uppá beina útsendingu og lifandi úrslit á Youtube.


Hlökkum til að sjá ykkur sem flest í Hafnarfirði.


Badmintonfélag Hafnarfjarðar badmintonfelag.is

Nánari upplýsingar veitir: Anna Lilja s. 868 6361


ree

 
 
 

Comments


©2017 BY BADMINTONSAMBAND ÍSLANDS. PROUDLY CREATED WITH WIX.COM

  • facebook
bottom of page