top of page
Search

Mjólkursamsalan framlengir samstarfssamning sinn við Badmintonsamband Íslands

  • bsí
  • Apr 20, 2020
  • 1 min read


Badmintonsamband Íslands og Mjólkursamsalan hafa gert áframhaldandi samstarfssamning sín á milli og gildir hann til maí 2021. Með samningnum mun fullorðinsmótaröð sambandsins áfram heita Hleðslubikarinn og þeir keppendur sem verða efstir á styrkleikalista sambandsins í lok tímabilanna 2020 og 2021 fá nafnbótina bikarmeistarar. Á það við um einliða-, tvíliða- og tvenndarleik í Meistara- , A – og B flokki.

Mjólkursamsalan hefur verið styrktaraðili sambandsins síðan í febrúar 2019. Þakkar Badmintonsamband Íslands Mjólkursamsölunni kærlega fyrir stuðninginn og hlakkar til áframhaldandi samstarfs.



Guðný Steinsdóttir markaðsstjóri MS og Kjartan Valsson framkvæmdastjóri BSÍ (Mynd tekin í febrúar 2019).



 
 
 

Comments


©2017 BY BADMINTONSAMBAND ÍSLANDS. PROUDLY CREATED WITH WIX.COM

  • facebook
bottom of page