Mótamál
Badmintonsamband Íslands ogaðildarfélög þess halda fjölmörg badmintonmót á hverju ári.
Upplýsingar um opinber mót má nálgast undir liðnum mótaskrá. Einnig er hægt að nálgast upplýsingar um mót vetrarins og aðra viðburði á viðburðardagatalinu á forsíðu heimasíðunnar smella hér.
Mótareglur BSÍ má finna með því að smella hér.
Flest badmintonmót á Íslandi hafa frá og með hausti 2007 verið skipulögð í hugbúnaðinum Badminton Tournament Planner. Hægt er að skoða úrslit og niðurraðanir móta á:
http:/www.tournamentsoftware.com.
Mælst er til þess að öll félög skrái leikmenn sína til keppni í badmintonmót á sérstöku excelskjali. Nýtt skráningarskjali með uppfærðum styrkleikalista, fyrir fullorðinsmót, var tekið í notkun í nóvember 2021 og má ávalt nálgast nýjasta skjalið á þessari slóð:
https://www.badminton.is/styrkleikalisti.
Ennþá er skráð í unglingamót með eldra exelskjalinu og má nálgast það með því að smella hér. Tímabilið 2024 - 2025 verður ekki notaður styrkleikalisti unglinga, vegna breytinga á fyrirkomulagi unglingamóta.
Félög sem halda mót sækja nýjasta Master skráningarskjalið með því að smella hér og sama gildir um félög sem eru að fara skrá í mót. Mikilvægt er að allir sæki nýjasta skjalið því það er með nýjasta styrkleikalistanum.