top of page
Search
bsí

Ársþing BSÍ 2024 fór fram 10. júní síðastliðinn

Ársþing Badmintonsambands Íslands fór fram í salarkynnum Íþróttamiðstöðvarinnar í Laugardal fimmtudaginn 10. júní 2024. ríflega 40 manns sátu þingið, þar af 36 þingfulltrúar frá aðildarfélögunum.


Þingið gekk vel fyrir sig og voru áritaðir reikningar sambandsins samþykktir samhljóða. Kynning var að starfi mótasviðs og afreskssviðs ásamt því að 2 ályktanir voru kynntar og fóru fram góðar umræður um þær.


Endurkjörin til næstu tveggja ára í stjórn sambandsins voru þau Kristján Daníelsson formaður, Guðrún Gunnarsdóttir, Guðbjörg Jóna Guðlaugdóttir, Arnór Tumi Finnsson Pétur Hemmingsen og Haukur Þórðarson. Kristinn Ingi Guðjónsson gaf ekki kost á sér til áframhaldandi starfa og berum við honum kærar þakkir fyrir sitt framlag. Nýir inní stjórn kemur Kjartan Drafarson




91 views0 comments

Comments


bottom of page