top of page
Search
laufey2

ÚRSLIT Á ÓSKARSMÓTI KR 2023, 25 - 26 FEBRÚAR.

Óskarsmót KR var haldið um s.l. helgi, í KR heimilinu, í Reykjavík og voru 79 keppendur mættir til leiks.

Mótið er hluti af mótaröð BSÍ og gefur stig á styrkleikalista sambandsins.


Úrslit urðu eftirfarandi:


Úrvalsdeild:

Í einliðaleik karla sigraði Róbert Ingi Huldarsson BH og Gústav Nilsson TBR varð í öðru sæti.



Í einliðaleik kvenna vann Lilja Bu TBR gull og Sigríður Árnadóttir TBR silfur.



Í tvíliðaleik karla léku til úrslita Davíð Bjarni Björnsson og Kristófer Darri Finnsson TBR gegn Daníel Jóhannessyni og Jónasi Baldurssyni TBR og þar sigruðu Davíð Bjarni og Kristófer.


Í tvíliðaleik kvenna unnu Sigríður Árnadóttir og Lilja Bu TBR gull og Sólrún Anna Ingvarsdóttir og Una Hrund Örvar BH silfur.


Í tvenndarleik unnu Daníel Jóhannesson og Sigríður Árnadóttir TBR gull og Róbert Þór Henn TBR og Sólrún Anna Ingvarsdóttir BH silfur.



Úrslit í 1. deild

Í einliðaleik karla sigraði Stefán Logi Friðriksson BH og í öðru sæti varð Kristján Huldar Aðalsteinsson TBR.


Í einliðaleik kvenna vann Hrafnhildur Edda Ingvarsdóttir TBS gull og Iðunn Jakobsdóttir TBR silfur.


Í tvíliðaleik karla sigruðu Bjarni Þór Sverrisson og Elis Tor Dansson TBR og í öðru sæti urðu Einar Sverrisson og Sigurður Patrik Fjalarsson TBR.




Í tvíliðaleik kvenna sigruðu Natalía Ósk Óðinsdóttir og Rakel Rut Kristjánsdóttir BH og Hrafnhildur Magnúsdóttir og Iðunn Jakobsdóttir TBR lentu í öðru sæti.




Í tvenndarleik unnu Adam Elí Ómarsson BH og Hrafnhildur Edda Ingvarsdóttir TBS gull og Stefán Logi Friðriksson og Lena Rut Gígja BH silfur.



Úrslit í 2. deild:

Í einliðaleik karla vann Jón Víðir Heiðarsson BH gull og Sudeer Nunna KR silfur.


Í einliðaleik kvenna sigraði Birna Sól Björnsdóttir TBR og í öðru sæti varð Lena Rut Gígja BH.


Í tvíliðaleik karla unnu Hrafn Örlygsson og Kári Þórðarson BH gull og Alexander Stefánsson og Stefán Alfreð Stefánsson UMFA silfur.


Í tvenndarleik unnu Alexander Stefánsson og Svanfríður Oddgeirsdóttir UMFA gull og Kári Þórðarson og Katrín Stefánsdóttir BH silfur.



Með því að smella hér er hægt að skoða öll nánari úrslit frá mótinu og fleiri myndir eru á facebook síðu KR

146 views0 comments

Comentários


bottom of page