top of page
Search
laufey2

ÚRSLIT Á REYKJAVÍKURMÓTI FULLORÐINNA 2023

Reykjavíkurmót fullorðinna / Meistaramót Reykjavíkur var haldið í TBR húsunum, Reykjavík, um helgina og voru 94 keppendur mættir til leiks. Mótið er hluti af mótaröð BSÍ og gefur stig á styrkleikalista sambandsins.


Úrslit urðu eftirfarandi:


Úrvalsdeild:

Í einliðaleik karla sigraði Daníel Jóhannesson TBR og Róbert Ingi Huldarsson BH varð í öðru sæti.



Í einliðaleik kvenna vann Gerda Voitechovskaja BH gull og Lilja Bu TBR silfur.



Í tvíliðaleik karla léku til úrslita Davíð Bjarni Björnsson og Kristófer Darri Finnsson TBR gegn Daníel Jóhannessyni og Jónasi Baldursyni TBR og þar sigruðu Davíð Bjarni og Kristófer.



Í tvíliðaleik kvenna (Úrv.deild / 1.deild) unnu Sigríður Árnadóttir og Lilja Bu TBR gull og Natalía Ósk Óðinsdóttir og Rakel Rut Kristjánsdóttir BH silfur.



Í tvenndarleik unnu Davíð Bjarni Björnsson TBR og Gerda Voitechovskaja BH gull og Róbert Ingi Huldarsson og Una Hrund Örvar BH silfur.



Úrslit í 1. deild :

Í einliðaleik karla sigraði Einar Óli Guðbjörnsson TBR og í öðru sæti varð Eggert Þór Eggertsson TBR.



Í einliðaleik kvenna vann Katla Sól Arnarsdóttir BH gull og Iðunn Jakobsdóttir TBR silfur.


Í tvíliðaleik karla sigruðu Guðmundur Adam Gígja og Stefán Steinar Guðlaugsson BH og í öðru sæti urðu Ingólfur Ingólfsson og Kristján Daníelsson TBR.



Í tvenndarleik unnu Egill Sigurðsson og Guðbjörg Jóna Guðlaugsdóttir TBR gull og Bjarni Þór Sverrisson TBR og Hrund Guðmundsdóttir Hamar silfur.




Úrslit í 2. deild:

Í einliðaleik karla vann Daníel Þór Heimisson ÍA gull og Kristján Ásgeir Svavarsson BH silfur.



Í einliðaleik kvenna sigraði Sigrún Marteinsdóttir TBR og í öðru sæti varð Hrafnhildur Magnúsdóttir TBR.



Í tvíliðaleik karla unnu Freyr Víkingur Einarsson og Þorleifur Fúsi Guðmundsson BH gull og Hrafn Örlygsson og Kári Þórðarson BH silfur.


Í tvíliðaleik kvenna sigruðu Elín Helga Einarsdóttir og Lena Rut Gígja BH og í öðru sæti urðu Birna Sól Björnsdóttir og Hildur Björgvinsdóttir TBR.



Í tvenndarleik unnu Björn Ágúst Ólafsson og Elín Helga Einarsdóttir BH gull og Funi Hrafn Eliasen og Birna Sól Björnsdóttir silfur.



Með því að smella hér er hægt að skoða öll nánari úrslit frá mótinu og fleiri myndir eru á facebook síðu TBR

86 views0 comments

留言


bottom of page