top of page
Search
  • bsí

Tinna og Drífa mættust


Heil umferð fór fram í dönsku deildinni um helgina. Drífa Harðardóttir spilar með Hvidovre 2 en félagið spilar í 3. deild en deildin er spiluð í fjórum átta liða riðlum. Þriðji leikur liðsins var gegn Værløse 3 á laugardaginn. Hvidovre tapaði 3-10.

Drífa lék fyrsta tvíliðaleik kvenna og fyrsta tvenndarleik fyrir lið sitt. Tvíliðaleikinn átti hún að leika með Jennifer Andersen gegn Tinnu Helgadóttur og Sussie Steindal en þær fengu leikinn gefinn. Tvenndarleikinn lék hún með Michael Poulsen gegn Morten Estrup og Tinnu Helgadóttur, sem unnu 21-17, 21-15.

Hvidovre 2 vann annan einliðaleik kvenna og annan og þriðja tvíliðaleik karla. Smellið hér til að sjá fleiri úrslit viðeignanna.

Eftir þessa þriðju umferð þriðju deildar er Hvidovre 2 áfram í sjöunda sæti riðilsins. Smellið hér til að sjá stöðuna í riðlinum.

Næsti leikur liðsins er laugardaginn 18. nóvember en þá leikur Hvidovre 2 gegn Gentofte 3.


39 views0 comments
bottom of page