top of page
Search
bsí

Þing Badmintonsambands Íslands er að baki


Þing Badmintonsambands Íslands fór fram í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal 2.maí síðastliðinn. Þetta 49.þing fór í alla staði vel fram og var því stýrt örugglega af þingforsetanum Herði Þorsteinssyni. Fulltrúar frá sex héraðssamböndum og Íþróttabandalögum sóttu þingið.

Ívar Oddsson og Birgitta Rán Ásgeirsdóttir gáfu ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarstarfa en Guðrún Björk Gunnarsdóttir, Helgi Jóhannesson, Vignir Sigurðsson og Hrund Guðmundsdóttir sitja áfram í stjórn auk Kristjáns Daníelssonar formanns.

Nýir í stjórn eru Irena Ásdís Óskarsdóttir og Arnór Tumi Finnsson sem voru kosin til tveggja ára.

Stjórn Badmintonsambands Íslands skipar því eftirfarandi einstaklinga :

Kristján Daníelsson, formaður

Arnór Tumi Finnsson

Guðrún Björk Gunnarsdóttir

Helgi Jóhannesson

Hrund Guðmundsdóttir

Irena Ásdís Óskarsdóttir

Vignir Sigurðsson.

Badmintonsamband Íslands þakkar fulltrúm allra aðildarfélaga, þjálfurum, dómurum, keppendum og öllum iðkendum íþróttarinnar fyrir samstarfið í vetur.


54 views0 comments
bottom of page