top of page
Search
bsí

Kári tapaði í Brasilíu


Kári Gunnarsson tók þátt í alþjóðlega mótinu 34th Brazil International Challenge 2019. Kári var frekar óheppin með drátt og lenti í fyrstu umferð gegn Ygor Coelho frá Brasilíu en hann er nr. 61 á heimslistanum í einliðaleik en Kári er nr 145 á listanum. Kári tapaði fyrstu lotunni 7 - 21 en vann svo næstu lotu 21 - 13. Þurfti því að leika oddalotu þar sem Ygor hafði yfirhöndina 15 - 21.

Hægt er að sjá nánari úrslit frá mótinu með því að smella hér. Næsta verkefni Kára verður í Danmörku en þar tekur hann þátt í Li-Ning Denmark Challenge 2019 en það mót fer fram dagana 9. - 12. maí.


125 views0 comments
bottom of page