top of page
Search
bsí

Meistaramót BH hefst á föstudag


Meistaramót BH verður haldið dagana 15. - 17. nóvember í Íþróttahúsinu Strandgötu. Keppt verður í Meistaraflokki, A-flokki og B-flokki og eru 92 keppendur skráðir til leiks frá fimm félögum. Mótið er hluti af Hleðslubikarnum og gefur stig á styrkleikalista badmintonsambandsins.

Dagskrá mótsins er eftirfarandi: Föstudagur 15.nóvember kl. 17:00-22:00 Spilað fram í úrslit í einliðaleik í öllum flokkum - hreinn útsláttur Laugardagur 16.nóvember kl. 10:00-16:30 Úrslitaleikir í einliðaleik fyrst um morguninn Tvenndarleikur í öllum flokkum - riðlar þar sem efstu tvö lið komast áfram í útsláttarkeppni Sunnudagur 17.nóvember kl. 9:00-17:00 Tvíliðaleikur í öllum flokkum - riðlar þar sem efstu tvö lið komast áfram í útsláttarkeppni

Keppt verður í riðlum í tvíliða- og tvenndarleik þar sem tvö pör fara upp úr hverju riðli. Í einliðaleik er spilaður hreinn útsláttur.

Smellið hér til að sjá niðurröðun og tímasetningar á mótinu.


143 views0 comments
bottom of page