Badmintonveisla á Sauðárkróki
- sport008
- 20 hours ago
- 2 min read
Það var líf og fjör á Sauðárkróki um verslunarmannahelgina þegar Unglingalandsmót UMFÍ fór fram. Yfir 1.100 ungmenni mættu til leiks, kepptu í íþróttum á daginn og skemmtu sér á tónleikum á kvöldin.
Keppni í badminton fór fram á föstudeginum með metþátttöku, en rúmlega 200 keppendur tóku þátt. Keppt var í 11–12 ára, 13–14 ára og 15–18 ára flokkum hjá bæði stúlkum og drengjum.
Til að koma öllum að var spilað á tíma og notast við Monrad-kerfið. Það fyrirkomulag tryggir að allir fá jafnmarga leiki en spilaðar voru sex umferðir og spennan var í hámarki undir lokin þegar getustig keppenda hafði jafnast út.
Áhugi ungmennanna á badminton var gífurlegur og því þurfti að halda uppi miklum hraða. Leikirnir voru aðeins 4–5 mínútur með engu hléi á milli og var keyrt stanslaust frá klukkan 8:30 um morguninn til 19:30 um kvöldið. Alls voru spilaðir um 630 leikir á 11 klukkustundum.
Um kvöldið var svo boðið upp á LED-partý-badminton þar sem ljósin voru slökkt, kveikt á partíljósum, netin skreytt með ljósaseríum og LED-kúlur flugu um salinn. Þetta sló rækilega í gegn hjá bæði börnum og fullorðnum og komust færri að en vildu, en biðröð hafði myndast langt út á götu um 15 mínútum áður en opnað var í salinn – sannkölluð badmintonveisla frá morgni til kvölds.
Það var Badmintondeild Tindastóls sem sá um skipulag badmintondagsins í góðu samstarfi við starfsfólk UMFÍ og öflugan hóp sjálfboðaliða, en margir þeirra höfðu aldrei tekið þátt í badmintonmóti áður. Badmintondeildin vill koma fram þakklæti til allra þátttakenda, foreldra, samstarfsfólki og sjálfboðaliðum fyrir daginn.
Badmintonsamband Íslands vill koma fram þakklæti til Badmintondeildar Tindastóls og óska þeim til hamingju með frábæra framkvæmd og það er von okkar að íþróttin okkar sé komin á kortið á Unglingalandsmótinu.
Hér að neðan eru nokkrar myndir sem við fengum sendar frá Tindastól.











Comments