Davíð og Kristófer taka þátt á EM 2026
- Margrét Nilsdóttir
- 2 minutes ago
- 1 min read
Nú hefur verið staðfest að tvíeykið Davíð Bjarni Björnsson og Kristófer Darri Finnsson muni keppa fyrir Íslands hönd í tvíliðaleik karla á Evrópumótinu í badminton 2026. Mótið fer fram í Huelva á Spáni dagana 6.–12. apríl.
Þetta er í þriðja skiptið sem Davíð og Kristófer vinna sér inn þátttökurétt á Evrópumeistaramótinu í badminton, sem undirstrikar stöðugan árangur þeirra á alþjóðavettvangi. Þeir eru nú í 45. sæti á Evrópulista Badminton Europe og í 175. sæti á heimslista Alþjóðabadmintonsambandsins.
Badmintonsamband Íslands óskar Davíð og Kristófer góðs gengis á mótinu og hvetur badmintonáhugafólk til að fylgjast með þeim á komandi Evrópumeistaramóti.
Nánari upplýsingar um mótið má finna á heimasíðu Badminton Europe: https://badmintoneurope.com/web/corporate/tournament?tournament_code=25A4DDB1-A76C-4A9C-B486-B5E9588D8C4A&tournament_tab=overview








Comments