Deildakeppni BSÍ 2022 - 2023 hefst í næstu viku, fimmtudaginn 10 nóv. með viðureign UMFA og BH Ungir, í A riðli í 2. deild, í Mosfellsbæ.
Keppnin er með breyttu fyrirkomulagi, þar sem nú er hún yfir allt tímabilið, frá 7 nóv. til 23 apríl 2023.
Alls eru 13 lið í keppninni og er keppt heima og að heiman.
Í Úrvalsdeild eru 3 lið í einum riðli, í 1. deild eru 4 lið í einum riðli og í annari deild eru 6 lið í 2 riðlum, 3 í hvorum. Í annari deild verður keppt upp úr riðlunum um sæti (1-2, 3-4 og 5-6) heima og heiman. Ekki er búið að tímasetja þá leiki en keppt verður vikurnar 27 mars - 2 apríl og 17 - 23 apríl.
Áætlað er að verðlaunaafhending fari fram á Meistaramóti Íslands 27 - 30 apríl 2023.
Allar upplýsingar um mótið og liðin ná finna á;
og á heimasíðu BSÍ www.badminton.is ,undir Deildó.
Nánari upplýsingar um mótið veitir mótsstjóri og yfirdómari á deildakeppni@badminton.is
Comentários