top of page
Search

U19 landsliðið á heimleið eftir lærdómsríkt EM í Ungverjalandi

  • sport008
  • 1 hour ago
  • 1 min read

Í dag heldur U19 landsliðshópurinn okkar heim á leið eftir viðburðaríka daga á Evrópumeistaramótinu í Ungverjalandi.


Liðakeppninni lauk á laugardag og í kjölfarið tók einstaklingskeppnin við. Íslensku keppendurnir tóku þátt í sínum greinum bæði laugardag og sunnudag. Þrátt fyrir að komast ekki áfram í sínum greinum stóðu þau sig vel og áttu marga góða spretti í gegnum mótið. Næst því að komast áfram voru Eggert og Rúnar í tvíliðaleik, en þeir féllu úr leik eftir tapleik í oddaviðuregin, 15-21.


Þjálfarar hópsins lýsa mikilli ánægju með frammistöðu keppenda, bæði innan vallar sem utan. Þótt úrslitin hafi ekki alltaf fallið okkur í hag var jákvæður stígandi í leik liðsins í gegnum mótið og keppendur öðluðust dýrmæta reynslu af því að spreyta sig á stóra sviðinu.

Við í BSÍ erum stolt af hópnum og óskum þeim góðrar heimferðar.



Næstu verkefni landsliðshópa sambandsins eru EM U15 dagana 7.-10.október í Noregi, landsliðsbúðir 15.-18.október og Smáþjóðaleikarnir í lok október.

 
 
 

Comments


©2017 BY BADMINTONSAMBAND ÍSLANDS. PROUDLY CREATED WITH WIX.COM

  • facebook
bottom of page