top of page
Search

Happdrætti Badmintonsambands Íslands 2022

bsí
Nov 15, 2022
1 min read

Þessa dagana er í gangi sala á miðum í árlegu happdrætti Badmintonsambands Íslands til styrktar afreks og útbreiðslustarfi. Öllum iðkendum býðst að fá miða til að selja til styrktar sambandinu en safna um leið pening í eigin sjóð. Miðinn kostar 1.500 kr og fær sölufólkið 300 kr í sölulaun. Söluhæsti einstaklingurinn í hverju félagi verður verðlaunaður með 15.000 kr gjafabréfi hjá RSL. Verðlaunin í happdrættinu eru glæsileg, gjafabréf frá Icelandair og Ormsson, badmintonvörur frá RSL og gisting á Hótel Örk.


Dregið verður 22. desember þannig að takið vel á móti okkar iðkendum og styrkið okkar frábæra afreksfólk og með kaup á miða.




Upplýsingar um vinningsmiða verða birtar á badminton.is.


 
 
 

Recent Posts

See All
Undanúrslit á Opna Norska mótinu

Um helgina fór fram FZ Forza Norwegian International 2026 í Sandefjörð og tóku 14 íslenskir spilarar þátt í mótinu. Mjög góður árangur náðist á mótinu og komust félagarnir Davíð Bjarni og Kristófer Da

 
 
 

Comments


©2017 BY BADMINTONSAMBAND ÍSLANDS. PROUDLY CREATED WITH WIX.COM

  • facebook
bottom of page