top of page
Search

Happdrætti BSÍ 2026 er hafið

bsí
10 minutes ago
1 min read

Árlegt happdrætti Badmintonsambands Íslands stendur nú yfir. Allur ágóði rennur til afreks- og útbreiðslustarfs sambandsins.


Öllum iðkendum býðst að fá miða til að selja og safna um leið í sinn eigin sjóð. Miðinn kostar 2.500 kr. og söluaðilar fá 500 kr. í sölulaun fyrir hvern seldan miða.


Verðlaun fyrir söluhæsta: Söluhæsti einstaklingurinn í hverju félagi fær 10.000 kr. gjafabréf hjá RSL.


Vinningar: Heildarverðmæti vinninga er 6.349.000 kr. Meðal þeirra eru gjafabréf frá Icelandair, Húsgagnahöllinni og Ormsson, badmintonvörur frá RSL og gisting á Hótel Örk.


Mikilvægar dagsetningar:

  • Skila þarf upplýsingum um selda miða fyrir 18. desember.

  • Dregið verður 22. desember.


Vantar þig miða eða ertu með spurningar? Hafðu samband við skrifstofu BSÍ í bsi@badminton.is eða í síma 514 4045.



 
 
 

Comments


©2017 BY BADMINTONSAMBAND ÍSLANDS. PROUDLY CREATED WITH WIX.COM

  • facebook
bottom of page