Landsliðsverkefni 2026
- Margrét Nilsdóttir
- 1 day ago
- 1 min read
Árið 2026 verður afar viðburðaríkt hjá landsliðunum, með fjölda landsliðsbúða og spennandi verkefna á alþjóðavettvangi. Nú liggja fyrir dagsetningar á næstu tveimur landsliðsbúðum auk þess sem ákvörðun hefur verið tekin um þátttöku í fjölmörgum landsliðsverkefnum.
Næstu landsliðsbúðir fara fram:
28. mars – 4. apríl 2026
7.–10. maí 2026
Fleiri landsliðsbúðir verða haldnar á árinu, en dagsetningar þeirra verða auglýstar síðar.
Auk þess munu landslið taka þátt í ýmsum erlendum verkefnum og mótum á árinu:
North Atlantic Camp (U17/U15) – líklega á Grænlandi í júní
Sumarskóli Badminton Europe (U17) – óstaðsett, líklega í júlí
Nordic Camp (U17/U15)– óstaðsett, líklega í júlí
Evrópumót U19 (fædd 2008 og síðar) - í Ungverjalandi, 18.–27. ágúst 2026
Evrópumót U15 (fædd 2012 og síðar) - í Noregi, 7.–20. október 2026
Smáþjóðaleikar A-landsliða - í Færeyjum, líklega í lok október
Evrópukeppni liða A-landsliðið - óstaðsett en líklega í byrjun desember
Verkefnin sem framundan eru munu styrkja landsliðin enn frekar og veita leikmönnum afar dýrmæta reynslu.











Comments