Meistaramót UMFA 2026, 26-27 sept.
- laufey2
- 4 minutes ago
- 1 min read
Helgina 26. - 27. september nk. verður Meistaramót UMFA haldið í Íþróttamiðstöðinni að Varmá í Mosfellsbæ.
Keppt verður í Úrvalsdeild, 1. deild og 2. deild í öllum greinum.
Mótið gefur stig á styrkleikalista og er hluti af fullorðinsmótaröð BSÍ.
Við minnum á að spilað er eftir nýju fyrirkomulagi upp í 15.
Keppt verður í riðlum í tvíliða - og tvenndarleik en útsláttur verður í einliðaleik.
Stefnt er að því mótafyrirkomulagi að hver grein verði spiluð út á einum degi en raðað verður niður á daga eftir skráningu.
Á því getur verið undantekning ef það hentar niðurröðun mótsins.
Mótanefnd UMFA áskilur sér rétt á að spila 1 umferð í völdum greinum föstudagskvöldið 25. september, ef þátttaka og uppröðun kallar á slíkt.
Mótsgjöld eru 4.500 kr. fyrir hverja grein
Skráningarfrestur er til og með 18. september 2026.
Skráningu skal skilað á badminton@afturelding.is









Comments