top of page
Search

MINNUM Á UNGLINGAMÓT UMFA, 17-18 FEBRÚAR 2024

  • laufey2
  • Feb 14, 2024
  • 1 min read

Unglingamót Aftureldingar fer fram um næstu helgi, 17 - 18 febrúar í íþróttamiðstöðinni að Varmá, við Skólabraut í Mosfellsbæ.


Keppt verður í einliðaleik, tvíliðaleik og tvenndarleik í flokki A og B,

í U13, U15, U17 og U19.

Úrslit í A-flokki gefa stig inn á styrkleikalista og er hluti af Stjörnumótaröð BSÍ.


Keppnisfyrirkomulag verður þannig að keppt verður í riðlum í einliðaleik en útslætti í tvíliða og tvenndarleik


Mótsgjald fyrir einliðaleik er 2500 kr en 2000 kr fyrir tvíliða- og tvenndar.


Stefnt er að því að birta uppröðun í mótið og tímasetningar á morgun, fimmtudaginn 15. febrúar.


Hlökkum til að sjá ykkur,

Fh. Badmintondeildar Aftureldingar


Þorvaldur Einarsson (Tolli: 691 5469)



 
 
 

Comments


©2017 BY BADMINTONSAMBAND ÍSLANDS. PROUDLY CREATED WITH WIX.COM

  • facebook
bottom of page