Á miðnætti tók í gildi ný reglugerð um samkomutakmarkanir og eftirfarandi eru helstu atriði er snerta almenning og íþróttastarf í landinu:
Almennar fjöldatakmarkanir fara úr 10 í 50 manns
1 metra regla mun taka gildi í stað 2 metra reglu
Grímuskylda mun gilda áfram og tekur mið af nándarreglu
Fjöldatakmarkanir í íþróttum verða áfram 50 manns
Það verður heimilt að hafa allt að 500 manns í hverju hólfi í áhorfendasvæðum á íþróttaviðburðum
Sundstaðir, líkamsræktarstöðvar og skíðasvæði fá að taka á móti allt að 75% af leyfilegum fjölda samkvæmt starfsleyfi.
Hér er hægt að lesa frétt á vef Heilbrigðisráðuneytisins en beðið er eftir að reglugerðin verði birt til að sjá frekari útfærslu á reglunum.
![](https://static.wixstatic.com/media/dd8ead_11e49048f5bb444dbdcbc69d533acf0f~mv2.jpg/v1/fill/w_980,h_608,al_c,q_85,usm_0.66_1.00_0.01,enc_auto/dd8ead_11e49048f5bb444dbdcbc69d533acf0f~mv2.jpg)
댓글