North Atlantic Camp
- sport008
- 9 minutes ago
- 1 min read
Í dag ferðaðist 14 manna hópur til Nuuk í Grænlandi til að taka þátt í North Atlantic Camp (NAC). Búðirnar fara fram í Nuuk og hefjast á morgun, þriðjudag og munu standa yfir til sunnudagsins 28.júní en hópurinn mun ferðast heim mánudaginn 29.júní.
NAC eru árlegar búðir þar sem iðkendur frá Íslandi, Grænlandi og Færeyjum hittast, æfa og eiga frábærar samverustundir saman.
Það voru 12 spenntir iðkendur á Keflavíkurflugvelli í dag en þeir eru: Aron Snær, Birnir Hólm, Emil Víkingur, Felix Krummi, Grímur, Hákon, Hilmar Karl, Jón Markús, Marínó Örn, Kamilla Maddý, Perla Kim og Þórdís Edda. Fararstjórar í ferðinni eru Elín Guðmannsdóttir og Heimir Sverrisson. Þá mun Sune Gavnholt landsliðsþjálfari vera í búðunum.

Badmintonsambandið óskar þeir góðrar ferðar og skemmtunar í Nuuk.








Comments