top of page
Search
bsí

Reglugerð um takmörkun framlengd um þrjár vikur

Reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar nr. 1484/2021 sem hefði átt að falla úr gildi í dag, þann 12. Janúar, hefur verið framlengd um þrjár vikur. Reglur sérsambanda gilda því óbreyttar áfram næstu þrjár vikurnar eða þar til annað kemur í ljós.


Helstu reglur er snerta íþróttahreyfinguna eru eftirfarandi:

  • Almennar fjöldatakmarkanir eru 20 manns.

  • Heimilaður fjöldi á íþróttaæfingum og keppnum barna og fullorðinna er 50 manns.

  • Allt að 200 manns geta verið í hverju hólfi í áhorfendastúkum að uppfylltum ákveðnum skilyrðum er m.a. fela í sér notkun hraðprófa.

  • Allt að 50 manns geta verið í hverju hólfi í áhorfendasvæðum þar sem hraðpróf eru ekki notuð en þó að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.

  • Sundstaðir, líkamsræktarstöðvar og skíðasvæði geta tekið á móti allt að 50% af leyfilegum hámarksfjölda gesta.


Nánar er hægt að lesa um reglur og leiðbeiningar í íþróttahreyfingunni hér á heimasíðu ÍSÍ þar sem reglur sérsambanda eru birtar.


Íþrótta- og Ólympíusamband Ísland hvetur alla til þess að gæta vel að persónubundnum sóttvörnum áfram ásamt því að huga að líkamlegri og andlegri heilsu með því að hreyfa sig reglulega.



48 views0 comments

Comments


bottom of page