RSL ICELAND INTERNATIONAL 2026, 22-25 JANÚAR
- laufey2
- 1 hour ago
- 1 min read
RSL Iceland International 2026 fer fram í TBR húsum 22 - 25 janúar 2026.
BSÍ heldur mótið í samvinnu við Tennis- og badmintonfélag Reykjavíkur.
Mótið er Future Series Tournament og hluti af Badminton Europe Elite Circuit.
Skráningu í mótið lauk 23. desember s.l. og var skráning mjög mikil, alls 275 keppendur, frá 43 löndum. Frá Íslandi eru skráð 35 keppendur frá þremur félögum.
Þátttökulisti mótsins (M&Q listinn) hefur verið birtur á heimasíðu BSÍ og á Badminton Europe Allar upplýsingar um mótið (þegar þær eru tilbúnar til birtingar) eru á þessum síðum.
Dregið verður í mótið 13 janúar 2026.
Gróf dagskrá mótsins er eftirfarandi;
Fimmtudagur 22. jan.´26; kl. 09:00 - Qualifying rounds
Föstudagur 23. jan.´26; kl. 09.00 - Main Draw round 1
Laugardagur 24. jan.´26; kl. 09:00 - Main Draw round 2
kl. 16:00 - Quarter finals
Sunnudagur 25. jan.´26; kl. 09:00 - Semi finals
kl. 16:00 - Finals












Comments