Treyjudagurinn í TBR, á Einliðaleiksmóti TBR 2026
- laufey2
- 1 hour ago
- 1 min read
Leikmenn á Einliðaleiksmóti TBR tóku þátt í Treyjudeginum, til að sýna stuðning við börn með krabbamein og fjölskyldur þeirra.
Af facebooksíðu TBR;
"Í tilefni dagsins viljum við í TBR jafnframt vekja sérstaka athygli á Gleðistjörnunni, góðgerðarfélagi sem stofnað var til minningar um Þuríði Örnu Óskarsdóttur, sem lést árið 2023 eftir rúmlega 18 ára baráttu við heilaæxli. Þuríður starfaði hjá TBR og var því mikilvægur hluti af okkar samfélagi. Markmið Gleðistjörnunnar er að halda minningu Þuríðar á lofti með því að gleðja systkini langveikra barna með gleðigjöfum og viðburðum. Fjölskylda Þuríðar þekkir af eigin raun hversu mikilvægt það er að finna stuðning og hlýju frá samfélaginu þegar á reynir"








Comments