Unglingameistaramót KR 2026, 17-18 okt.
Unglingameistaramót KR 2026 fer fram í KR íþróttahúsinu, Frostaskjóli 2 Reykjavík, helgina 17 - 18 október n.k.
Mótið er einliðaleiksmót.
Keppt verður í U11 - U17/U19, eftir breyttu stigakerfi BSÍ (3x15 stig)
Í U11 verður spiluð ein lota uppí 15 og allir fá 2 - 3 leiki.
Spilað verður á sunnudeginum 18 okt. c.a. frá 09 - 12. Allir fá viðurkenningu fyrir þátttöku.
Í U13 - U17/U19 verður spilað í riðlum og keppendum raðað eftir styrkleika, eins og hægt er, þ.a. flestir fá leiki við hæfi.
Skráningarfrestur er til föstudagsins 9. október.
Skila skal skráningum á exel skjali, í styrkleikaröð innan félags.
Skráningu skal senda á badminton@kr.is
Þátttökugjald er kr. 2.000
Upplýsingar um mótið veitir Reynir Guðmundsson formaður
badminton@kr.is gsm: 666-8779









Comments