top of page
Search
  • laufey2

UNGLINGAMÓT TBS 2023, B-MÓT- 2. DESEMBER

Unglingamót TBS 2023 - B mót, verður haldið í íþróttahúsið á Siglufirði laugardaginn 2.desember 2023. Mótið hefst kl 12:00 og áætlað er að því verði lokið upp úr kl 16:00. Fer þó eftir skráningu.


Keppt er í eftirfarandi flokkum og greinum (áætlað skipulag hvers flokks):

U9 (2015 og yngri) > Einliðaleikur í riðlum á hálfum velli og spiluð ein lota á.

U11 (2013 og yngri) > Einliðaleikur í riðlum á heilum velli

og spilaðar tvær lotur upp í 21.

U13 (2011 og yngri) og U15 (2009 og yngri) > Einliða- og tvíliðaleikur.


Þátttökuverðlaun veitt í U9 og U11 en keppt til verðlauna í U13 og U15.


Mótið er mjög hentugt fyrir þá sem eru komnir skemmra á veg í íþróttinni og byrjendur. Markmiðið er að allir fái marga leiki við sitt hæfi.

Skráning á mótið ræður uppsetningu þess.


Mótsgjöld:

• Einliðaleikur kr 2.200 kr.

• Tvíliðaleikur kr 1.900 kr.


Skráning lýkur kl 20:00 mánudaginn 27.nóvember 2023. Athuga að aðeins er tekið við skráningu á Excel formati BSÍ (hægt að finna hér: https://www.badminton.is/motafyrirkomulag). Skráning sendist á netfangið: siglotennis@gmail.com


Sjoppa verður á mótssvæðinu.


Upplýsingar um mótið veitir:

Óskar Þórðarson (848-6726 eða siglotennis@gmail.com)


17 views0 comments

Recent Posts

See All
bottom of page