Anna Lilja, Árni og Jói mæla stökkkraftinn hjá Möggu
Vel var mætt á þjálfararnámskeið BSÍ sem fram fór í húsum ÍSÍ 27. september.
Anna Margrét íþróttastjóri og Róbert Henn sjúkraþjáfari og styrkþjálfari sáu um námskeiðið.
Þjálfarar frá Aftureldingu, BH og TBR mættu á námskeiðið og fræddust meðal annars um;
Tilgang afkastamælinga
Hvað erum við raunverulega að mæla
Hvað þarf að hafa í huga við framkvæmd mælinga
Hvað upplýsingar fáum við
Hvenær á að mæla
Hvernig lesum við útúr niðurstöðunum
Hvernig nýtum við okkur niðurstöðurnar til að veita leikmönnunum viðeigandi endurgjöf
Hvaða æfingar er æskilegt að innleiða til að styrkja þessa þætti sem við erum að mæla
Tvö mælitæki voru prófuð, Jumpmat stökkmotta sem mælir lóðréttan stökkkraft og Brower tímatökuhlið. Þjálfarar geta því nú fengið þessi tvö mælitæki lánuð frá sambandinu óski þeir eftir því.
Tímatökuhliðið prófað - Jói lét ekki iðnaðarrykið hægja neitt á sér
Við þökkum þjálfurum kærlega fyrir þátttökuna og vonum að þetta námskeið hafi gagnast þeim vel.
Comentarios