top of page
Search
  • bsí

Úrslit frá Meistaramóti TBR - Kristófer Darri vann þrefalt




Meistaramót TBR fór fram nú um helgina. Mótið er hluti af Hleðslubikar Badmintonsambandsins og gefur stig á styrkleikalista sambandsins. Kristófer Darri Finnsson leikmaður TBR vann þrefalt á mótinu í Meistaraflokki.


Kristófer Darri


Meistaraflokkur :

Í einliðaleik karla var það Kristófer Darri Finnsson TBR sem vann Daníel Jóhannesson TBR í úrslitaleiknum 14-21, 21-16 og 21-18.

Í einliðaleik kvenna mættust í úrslitum Júlíana Karitas Jóhannsdóttir og Sigríður Árnadóttir en báðar koma þær frá TBR. Vann Sigríður leikinn 21-18 og 21-18.

Í tvíliðaleik karla léku til úrslita Davíð Bjarni Björnsson TBR / Kristófer Darri Finnsson TBR gegn Daníel Jóhannessyni TBR / Jónas Baldurssyni TBR. Voru það Davíð Bjarni og Kristófer Darri sem unnu leikinn 21 - 17 og 21 - 13.

Í tvíliðaleik kvenna mættust Margrét Jóhannsdóttir TBR / Sigríður Árnadóttir TBR og Erla Björg Hafsteinsdóttir BH / Elín Þóra Elíasdóttir BH. Voru það Margrét og Sigríður sem unnu leikinn 12-21, 21-10 og 22-20..

Í tvenndarleik unnu þau Kristófer Darri Finnsson TBR og Margrét Jóhannsdóttir TBR. Þau spiluðu gegn Davíð Bjarna Björnssyni TBR og Erla Björg Hafsteinsdóttur BH og unnu leikinn 21-17 og 21-19.

A flokkur :

Í einliðaleik karla sigraði Gabríel Ingi Helgason. Hann mætti Gústav Nilssyni TBR og vann eftir oddalotu 11-21, 21-18 og 21-16.

Í einliðaleik kvenna voru fjórir keppendur skráðir til leiks og var spilað í riðli og var það Rakel Rut Kristjánsdóttir BH sem vann alla sína leiki. Í öðru sæti varð Elín Ósk Traustadóttir BH.

Í tvliðaleik karla mættust í úrslitum Egill Sigurðsson TBR / Ingólfur Ingólfsson TBR og Gústav Nilsson TBR / Stefán Árni Arnarsson TBR. Voru það Egill og Ingólfur sem unnu leikinn 21-12 og 21-15.

Í tvíliðaleik kvenna léku til úrslita Lilja Berglind Harðardóttir BH / Rakel Rut Kristjánsdóttir BH og Sunna Karen Ingvarsdóttir Afturelding / Svanfríður Oddgeirsdóttir Afturelding. Voru það Sunna og Svanfríður sem unnu leikinn 21-16 og 21-18.

Í tvenndarleik mættust Kristian Óskar Sveinbjörnsson BH / Rakel Rut Kristjánsdóttir BH og Gústav Nilsson TBR / Guðbjörg Jóna Guðlaugsdóttir TBR. Voru það Gústav og Guðbjörg sem unnu leikinn 21-17, 18-21 og 21-14.

B flokkur :

Í einliðaleik karla mættust í úrslitum Guðmundur Adam Gígja BH og Ásgeir Andri Adamsson Samherja. Var það Ásgeir sem vann leikinn 21-15, 18-21 og 21-12.

Í einliðaleik kvenna spiluðu til úrslita Halla Stella Sveinbjörnsdóttir BH og Natalía Ósk Óðinsdóttir BH. Var það Natalía sem vann eftir oddalotu 21-13, 18-21 og 21-6.

Í tvíliðaleik karla spiluðu Haukur Þórðarson BH / Stefán Alfreð Stefánsson Aftureldingu og Eiríkur Sigurðsson TBR / Finnur Sigurðsson TBR til úrslita. Voru það Haukur og Stefán sem unnu eftir hörku leik 23-21, 15-21 og 21-18.

Í tvíliðaleik kvenna mættust Natalía Ósk Óðinsdóttir BH / Sara Bergdís Albertsdóttir BH og Halla Stella Sveinbjörnsdóttir BH / Karítas Perla Elídóttir BH. Voru það Natalía og Sara sem unnu eftir oddalotu 13-21, 21-9 og 21-18.

Í tvenndarleik léku til úrslita Jón Sverrir Árnason BH / Natalía Ósk Óðinsdóttir BH og Stefán Alfreð Stefánsson Afturelding / Svanfríður Oddgeirsdóttir Afturelding. Voru það Stefán og Svanfríður sem unnu eftir oddalotu 21-17, 16-21 og 22-20.

Með því að smella hér er hægt að skoða öll nánari úrslit frá mótinu.

Einnig er hægt að skoða stöðu á styrkleikalistum sambandsins með því að smella hér.


91 views0 comments
bottom of page