top of page
Search

Úrslit á Meistaramóti UMFA 2026, 26-27 sept.

laufey2
5 hours ago
2 min read

Meistaramót UMFA fór fram um liðna helgi, 26 - 27 september, í Íþrótta- miðstöðinni að Varmá í Mosfellsbæ. Alls tóku 54 keppendur þátt í mótinu.


Keppt var í Úrvalsdeild, 1. deild og 2. deild í öllum greinum.

Mótið gefur stig á styrkleikalista og er hluti af fullorðinsmótaröð BSÍ.

Spilað var eftir nýju fyrirkomulagi upp í 15.


Úrslit urðu eftirfarandi:


Úrvalsdeild:

Í einliðaleik karla sigraði Einar Óli Guðbjörnsson TBR og Eggert Þór Eggertsson TBR varð í öðru sæti.


Í einliðaleik kvenna sigraði Hrafnhildur Edda Ingvarsdóttir BH og Iðunn Jakobsdóttir TBR varð í öðru sæti.


Í tvíliðaleik karla unnu Eggert Þór Eggertsson og Óðinn Magnússon TBR gull og Daníel Máni Einarsson og Eiríkur Tumi Briem TBR silfur.


Í tvenndarleik unnu Óðinn Magnússon og Iðunn Jakobsdóttir TBR gull og Ikmal Hussain Jaafar og Ioanna Antoniou TBS silfur.


Úrslit í 1. deild :

Í einliðaleik karla vann Erik Valur Kjartansson BH gull og Sebastían Amor Óskarsson TBS silfur.


Í einliðaleik kvenna vann Sunna Karen Ingvarsdóttir UMFA gull og Þórdís Edda Pálmadóttir TBR silfur.


Í tvíliðaleik karla urðu Erik Valur Kjartansson og Aron Snær Kjartansson BH í fyrsta sæti og Hákon Kemp og Lúðvík Kemp BH í öðru sæti.


Í tvíliðaleik kvenna urðu Natalía Ósk Óðinsdóttir og Lena Rut Gígja BH í fyrsta sæti og Kamilla Maddý Heimisdóttir og Ioanna Antoniou í öðru sæti.


Í tvenndarleik sigruðu Erik Valur Kjartansson og Natalía Ósk Óðinsdóttir BH og Hákon Kemp og Katla Sól Arnarsdóttir BH lentu í öðru sæti.


Úrslit í 2. deild:

Í einliðaleik karla vann Marinó Örn Óskarsson TBS gull og Úlfur Þórhallsson Hamar silfur.


Í einliðaleik kvenna vann Sigrún Hekla Kjartansdóttir TBR gull og Kamilla Maddý Heimisdóttir TBS silfur.


Í tvíliðaleik karla urðu Marinó Örn Óskarsson TBS og Felix Krummi Lárusson TBR í fyrsta sæti og Úlfur Þórhallsson og Vilhjálmur Haukur Leifs Roe Hamar í öðru sæti.


Í tvíliðaleik kvenna urðu Sigrún Hekla Kjartansdóttir og Perla Kim Arnardóttir TBR í fyrsta sæti og Anna Bryndís Andrésdóttir og Sunna María Ingólfsdóttir UMFA í öðru sæti.


Í tvenndarleik unnu Marinó Örn Óskarsson og Kamilla Maddý Heimisdóttir TBS gull og Vilhjálmur Haukur Leifs Roe og Rebekka Einarsdóttir Hamar silfur.


Með því að smella hér er hægt að skoða nánar öll úrslit frá mótinu og fleiri myndir á facebook síðu UMFA



 
 
 

Comments


©2017 BY BADMINTONSAMBAND ÍSLANDS. PROUDLY CREATED WITH WIX.COM

  • facebook
bottom of page