top of page
Search
  • bsí

Kári lék gegn Gade


Heil umferð fór fram í dönsku deildinni um helgina. Kári Gunnarsson spilar með KBK Kbh. en félagið spilar í 2. deild en deildin er spiluð í tveimur átta liða riðlum. Annar leikur liðsins var gegn Gentofte 2 á laugardaginn. Lið KBK tapaði 1-12.

Kári lék fyrsta einliðaleik karla og fyrsta tvíliðaleik karla fyrir lið sitt. Einliðaleikinn lék hann gegn sjálfum Peter Høeg Gade. Kári tapaði 9-21, 11-21. Tvíliðaleikinn lék hann með Simon Pihl. Þeir mættu Peter Høeg Gade og Jim Laugesen sem höfðu yfirhöndina allan tímann og unnu 21-5, 21-17.

KBK vann eingöngu fjórða einliðaleik karla í þessum leik KBK og Gentofte 2. Smellið hér til að sjá fleiri úrslit viðeignanna.

Eftir þessa aðra umferð annarrar deildar er KBK því í 8. og neðsta sæti riðilsins.

til að sjá stöðuna í riðlinum.

Næsti leikur liðsins er laugardaginn 8. október gegn Hvidovre.


15 views0 comments
bottom of page