top of page
Search
  • bsí

KBK fer upp um eitt sæti


Heil umferð fór fram í dönsku deildinni um helgina. Kári Gunnarsson spilar með KBK Kbh. en félagið spilar í 2. deild en deildin er spiluð í tveimur átta liða riðlum. Þriðji leikur liðsins var gegn Hvidovre á laugardaginn. Lið KBK tapaði 7-6.

Kári lék fyrsta einliðaleik karla og fyrsta tvíliðaleik karla fyrir lið sitt. Einliðaleikinn lék hann gegn Nikolaj J. Wolf. Kári vann 21-9, 21-13. Tvíliðaleikinn lék hann með Simon Pihl. Þeir mættu Kaare B. Mejding og Søren Clausen og unnu 23-21, 21-18.

KBK vann auk leikja Kára annan, þriðja og fjórða einliðaleik karla, fyrri tvíliðaleik kvenna og annan tvíliðaleik karla í þessum leik KBK og Hvidovre. Smellið hér til að sjá fleiri úrslit viðeignanna.

Eftir þessa þriðju umferð annarrar deildar fer KBK upp um eitt sæti og er í því sjöunda. Smellið hér til að sjá stöðuna í riðlinum.

Næsti leikur liðsins er laugardaginn 28. október gegn Hillerød.


11 views0 comments
bottom of page