top of page
Search
  • bsí

Þjálfaranámskeið 1A, 1B og 1C


Í vetur mun Badmintonsamband Íslands standa fyrir þremur þjálfaranámskeiðum, Badmintonþjálfara 1A, Badmintonþjálfara 1B og Badmintonþjálfara 1C. Námskeiðin verða haldin á Höfuðborgarsvæðinu ef næg þátttaka fæst en lágmarksfjöldi skráninga er átta þjálfarar. Kennarar á námskeiðunum verða Anna Lilja Sigurðardóttir og Irena Ásdís Óskarsdóttir, íþróttafræðingar og badmintonþjálfarar.

Tímasetningar

Badmintonþjálfari 1A - sunnudagur 22. október og sunnudagur 29. október 2017 - Síðasti skráningardagur er fimmtudagurinn 19. október.

Badmintonþjálfari 1B - helgin 17. - 18. febrúar 2018 - Síðasti skráningardagur fimmtudagur 8. febrúar. Badmintonþjálfari 1C - helgin - 3. - 4. mars 2018 - Síðasti skráningardagur fimmtudagur 22. febrúar.

Öll námskeiðin verða kennd á höfuðborgarsvæðinu og verður nánari dagskrá og staðsetning tilkynnt þegar nær dregur og þátttaka liggur fyrir. Hvert námskeið er 20 kennslustundir og verður þeim skipt niður á tvo daga. Hluti námskeiðanna verður í formi heimaverkefna og því má reikna með að kennsla hvern dag verði ekki meiri en 4 - 6 klukkustundir. Þátttakendur námskeiðsins þurfa að taka einnig dómaranámskeið BSÍ sem fer fram miðvikudagskvöldið 1. nóvember en það er hluti af Þjálfaranámskeiði 1A.

Kostnaður

1A kr. 15.000 1B kr. 15.000 1C kr. 15.000 Öll námskeiðin keypt í einu kr. 40.000,-

Badmintonbókin - Kennsluskrá BSÍ eftir Kenneth Larsen er innifalin í námskeiðsgjaldi. Badmintonþjálfara 1A. Bókin er notuð til kennslu á öllum þjálfaranámskeiðum BSÍ. Í lausasölu kostar bókin 5.000 kr.

Inntökuskilyrði

Lágmarksaldur til þátttöku í þjálfara 1 er 16 ár. Til að geta tekið þjálfara 1B þurfa þjálfarar að hafa lokið námskeiði 1A og til að geta tekið 1C þarf að ljúka bæði 1A og 1B. Að stigi 1 loknu á þjálfarinn að geta skipulagt og stjórnað æfingatíma hjá börnum og unglingum á byrjendastigi.

Íþróttahreyfingin hefur samræmt kerfi er við kemur menntun þjálfara. ÍSÍ sér um að kenna almennan hluta námsins en BSÍ sér um sérhæfðan badmintonhluta. Upplýsingar um almennan hluta ÍSÍ má nálgast á heimasíðunni www.isi.is.

Badmintonhreyfingin á Íslandi er ekki mjög stór og því ekki oft hægt að halda sömu námskeiðin. Hvetjum ykkur til að nýta námskeiðin sem nú verða í boði og senda unga og efnilega þjálfara á námskeið ásamt þeim sem vilja rifja upp og/eða læra nýjar aðferðir.

Skráningar óskast sendar á netfangið bsi@badminton.is með upplýsingum um nafn og

kennitölur þátttakenda ásamt upplýsingum um kennitölu greiðanda.


28 views0 comments
bottom of page