top of page
Search
  • bsí

Reykjavík International Games hefst á morgun (Unglingameistaramót TBR)


Reykjavík International Games 2018 - Unglingameistaramót TBR fer fram um helgina í TBR, Gnoðarvogi 1. Mótið hefst á morgun kl 09:00. Mótið er hluti af unglingamótaröð Badmintonsambandsins og gefur stig á styrkleikalista sambandsins.

Líkt og síðustu ár kemur fjöldinn allur af færeyskum spilurum en eru þeir um 60 talsins í ár. Auk þeirra eru foreldrar og þjálfarar og er því heildarfjöldinn um 120 manns sem koma til Íslands vegna þessa móts.

Má búast við mjög skemmtilegri keppni í öllum aldursflokkum.


194 views0 comments
bottom of page