top of page
Search
  • bsí

Bikarmót BH hefst á föstudag


Bikarmót BH fer fram í Íþróttahúsinu við Strandgötu helgina 20.-22.apríl. Til keppni eru skráðir 113 leikmenn frá fjórum félögum: 53 frá TBR, 47 frá BH, 9 frá ÍA og 4 frá Aftureldingu. Gróf dagskrá mótsins er eftirfarandi: Föstudagur U17-U19 - kl.17:00-21:30 Laugardagur U11 - kl.10:00-16:00 Sunnudagur U15 og U13 stelpur - kl.9:00-14:30 U13 strákar - kl.14:25-18:30 Niðurröðun og tímasetningar einstakra leikja má finna með því að smella hér.

Keppendur þurfa að skiptast á að telja og eru foreldrar hvattir til að aðstoða við það því það verður frekar stutt á milli leikja. Allir fá verðlaun að keppni lokinni og sigurvegari í hverjum riðli fær bikar.


54 views0 comments
bottom of page