Ný heimasíða einfaldar skipulag fyrir þjálfara á badmintonmótum
- Margrét Nilsdóttir
- 2 minutes ago
- 1 min read
Badmintonspilarinn og þjálfarinn Andrés Ásgeir Andrésson hefur þróað nýja heimasíðu sem auðveldar fólki, og þá sérstaklega þjálfurum, að fylgjast með hvenær þeirra leikmenn eru að keppa á badmintonmótum og einfalda skipulag í kringum þau.
Hingað til hefur Tournament Software verið helsti vettvangurinn fyrir badmintonmót á Íslandi en þar getur verið tímafrekt fyrir þjálfara að finna leiki og fylgjast með mörgum keppendum í einu. Með nýju heimasíðunni getur notandi einfaldlega valið sitt félag og fengið upp yfirlit yfir alla leiki þess á einum stað. Þetta einfaldar skipulag og gerir þjálfurum kleift að sjá hvenær mikið er að gerast og hvenær svigrúm gefst fyrir stutta kaffipásu.
Þrátt fyrir að síðan sé fyrst og fremst hugsuð fyrir þjálfara nýtist hún einnig dómurum, foreldrum, keppendum og öðrum áhorfendum sem vilja hafa betri yfirsýn yfir gang móta.
Reykjavíkurmót fullorðinna fer fram í TBR-húsum næstu helgi, dagana 21.–22. mars. Mótið er því kjörið tækifæri fyrir áhugasama, og þá sérstaklega þjálfara, til að prófa heimasíðuna og nýta hana til að fá betra skipulag og yfirsýn yfir leikina








Comments