top of page
Search
  • bsí

Badmintonfélag Akranes og Badmintondeild Skallagríms eru að auglýsa eftir þjálfara

Staða yfirþjálfara er laus til umsóknar


Badmintonfélag Akraness og Badmintondeild Skallagríms auglýsa stöðu yfirþjálfara lausa til umsóknar.


Yfirþjálfari sér um æfingar fyrir alla aldurshópa. Mikil uppbygging er hjá félögunum og iðkendur eru flestir í unglingaflokkum.


Nánari starfslýsing:

  • Þjálfun og skipulagning æfinga

  • Fylgd og þjálfun á badmintonmótum, bæði unglinga og fullorðins mótum

  • Samskipti við foreldra, stjórn og aðra þjálfara

  • Þátttaka í uppbyggingu félagana


Hæfniskröfur

  • Þjálfaramenntun

  • Reynsla af iðkun og keppni í badminton kostur

  • Íþróttakennaramenntun kostur


Áhugasamir sendi inn upplýsingar og ferilskrá til badminton@ia.is . Umsóknarfrestur er til föstudagsins 20. maí. Viðkomandi þarf að geta hafið störf í lok ágúst 2022.


Upplýsingar um starfið veitir Brynja Kolbrún Pétursdóttir formaður BA í síma 617-6318 og Bjarney Bjarnadóttir formaður BS í síma 779-1090.






82 views0 comments
bottom of page