top of page
Search

Badmintonfélag Akraness 50 ára

bsí
14 hours ago
1 min read

Badmintonfélag Akraness (ÍA) fagnaði 50 ára afmæli sínu í dag, miðvikudaginn 11. nóvember. Af því tilefni bauð félagið til afmælisveislu í Íþróttahúsinu við Vesturgötu á Akranesi. Þar var kaka í boði og heitt á könnunni, frjálst spil og hægt að fá lánaða spaða. Fyrrverandi og núverandi iðkendur félagsins litu við og fögnuðu tímamótunum.


Í hálfa öld hefur Badmintonfélag Akraness verið ein af máttarstoðum badmintoníþróttarinnar á Íslandi. Félagið hefur alið upp fjölda leikmanna, staðið fyrir öflugu barna- og unglingastarfi og verið mikilvægur hluti af íþróttalífinu á Akranesi. Það byggir á áratuga starfi þjálfara, stjórnarfólks, sjálfboðaliða og foreldra sem hafa lagt mikið á sig fyrir félagið.


Badmintonsamband Íslands óskar Badmintonfélagi Akraness innilega til hamingju með tímamótin. Í tilefni afmælisins færði BSÍ félaginu stigaspjöld að gjöf, sem við vonum að komi að góðum notum á æfingum og mótum um ókomin ár.

Til hamingju ÍA, og megi næstu 50 ár verða jafn farsæl!


Á myndinni afhendir Kristján Daníelsson, formaður Badmintonsambands Íslands, Helenu Rúnarsdóttur, framkvæmdastjóra og yfirþjálfara Badmintonfélags Akraness, gjöfina.



 
 
 

Comments


©2017 BY BADMINTONSAMBAND ÍSLANDS. PROUDLY CREATED WITH WIX.COM

  • facebook
bottom of page