Swedish Youth Games 2026
sport008
11 minutes ago
1 min read
Í morgun hófst ferðalagið hjá 8 leikmönnum, þjálfara og fararstjóra á Swedish Youth Games 2026 sem fram fer í Malmö. Mótið er á U17 mótaröðinni, það er fyrir iðkendur fædda 2010 og síðar.
Badmintonsambandið og aðildarfélög tóku saman ákvörðun um að fara á þetta mót og hefur allur undirbúningur og framkvæmd verið samvinnuverkefni sambandsins og aðildarfélaga.
Þeir 8 leikmenn sem ferðuðust í morgun eru:
Aron Snær Kjartansson BH
Birnir Hólm Bjarnason BH
Erik Valur Kjartansson BH
Hákon Kemp BH
Hilmar Karl Kristjánsson BH
Lúðvík Kemp BH
Lilja Dórótea Theodórsdóttir TBR
Þórdís Edda Pálmadóttir TBR
Þjálfari í ferðinni er Gerda Voitechovskaja og fararstjóri er Kjartan Drafnarson.









Comments