top of page
Search
  • bsí

Deildakeppni BSÍ - dagskrá helgarinnar og sóttvarnarreglur


Deildakeppni BSÍ fer fram í húsum TBR, Gnoðarvogi 1, dagana 26. - 28. febrúar . Alls taka 10 lið frá fimm félögum þátt í keppninni en keppt er í þremur deildum, Meistaradeild, A-deild og B.deild.


Í meistaradeild eru 2 lið skráð til leiks og er því um úrslitaleik að ræða. Sigurliðið er Íslandsmeistari og félagið keppir fyrir hönd Íslands í Evrópukeppni félagsliða sem fram fer í Bialystock, Póllandi dagana 21. - 25. júní.

Í A-deild eru skráð til keppni 3 lið sem keppa í einum riðli, allir við alla. Í B-deild eru skráð til keppni 5 lið sem keppa í einum riðli, allir við alla.


Eftirfarandi lið eru skráð til keppni :


Meistaradeild

  • BH

  • TBR


A. Deild

  • BH

  • BH / ÍA

  • TBR – Sleggjur / UMFA


B. Deild

  • BH – Extras

  • BH / Hamar / ÍA

  • TBR – Gemlingar

  • TBR - Hákarlar

  • Ungmennafélagið


Lesið vel yfir eftirfarandi reglur sem gilda um helgina :

  • Áhorfendur eru ekki leyfðir.

  • Aðeins leikmenn sem skráðir eru í lið er heimilt að vera á keppnisstað ásamt starfsfólki og þjálfurum. Þeir leikmenn sem eru á varamannalista er ekki heimilt að vera á keppnisstað nema þeir séu kallaðir inn í lið og tilheyra þá því liði.

  • Sæti verða fyrir leikmenn liða í stúkum og á bekkjum / stólum fyrir aftan hvern völl.

  • Grímuskylda er á alla þá sem ekki eru að keppa eða að hita upp.

  • Heimiluð nándarmörk milli ótengdra aðila utan vallar er nú 1 metri.

  • Búningsklefar eru opnir en mælt er með því að keppendur fari í sturtu heima hjá sér.

  • Liðsstjórar þurfa að skila liðsuppstillingum amk 30 mínútum fyrir áætlaðan leiktíma.

  • Munum eftir handþvotti og spritti.


Dagskrá helgarinnar er eftirfarandi :


Föstudagur

18:00 – B. deild (umferð 1)


Laugardagur

10:00 – B. deild (umferð 2) og A. deild (umferð 1)

13:00 – B. deild (umferð 3)

16:00 – Meistaradeild (1 umferð) og A. deild (umferð 2)


Sunnudagur

10:00 – B.deild (umferð 4)

13:00 – B.deild (umferð 5) og A.deild (umferð 3)


Yfirdómari mótsins er Laufey Sigurðardóttir og mótsstjóri er Kristján Daníelsson.

Sóttvarnarfulltrúi BSÍ er Guðbjörg Jóna Guðlaugsdóttir.

171 views0 comments
bottom of page