Evrópumót smáþjóða
Á morgun, miðvikudag ferðast íslenski hópurinn á Evrópumót smáþjóða sem fram fer í Færeyjum. Mótið hefst á föstudagsmorgun og er spilað til sunnudags. Íslenski hópurinn ferðast svo heim á mánudag.
Það eru níu þjóðir skráðar til leiks en það eru: Kýpur, Færeyjar, Grænland, Ísland, Malta, Liechtenstein, Luxemborg, Gíbraltar og Monaco. Spilað verður í þremur 3ja landa riðlum þar sem tvö efstu liðin fara áfram (tvo beint í undanúrslit og hin fjögur spila um að komast í undanúrslit).
Íslenska liðið er skipað eftirtöldum spilurum:
Arna Karen Jóhannsdóttir TBR
Davíð Bjarni Björnsson TBR
Einar Óli Guðbjörnsson TBR
Gústav Nilsson TBR
Hrafnhildur Edda Ingvarsdóttir BH
Iðunn Jakobsdóttir TBR
Kristófer Darri Finnsson TBR
Una Hrund Örvar BH
Þjálfari á mótinu er Sune Gavnholt landsliðsþjálfari.
Tímasetning leikja er ekki komin og munu við birta það um leið og þær upplýsingar berast en hægt er að fylgjast með mótinu hérna: Tournamentsoftware.com - Small States of Europe Badminton Team Championships 2026 - Organization
Við óskum hópnum góðrar ferðar og góðs gengis á mótinu.








Comments