top of page
Search

Hafnafjarðarleikarnir í SPECIAL OLYMPICS badminton 2026

laufey2
19 hours ago
1 min read

Hafnarfjarðarleikarnir í Special Olympics badminton verða haldnir laugardaginn 14.nóvember 2026 í Íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði.


Leikarnir hefjast klukkan 10:00 og verður lokið í síðasta lagi klukkan 14:00.


Raðað verður í riðla eftir getu og reynslu. Öll velkomin óháð aldri. Keppnin verður aðlöguð að hverjum einstakling og reynsla af badminton ekki nauðsynleg.

Hægt er að mæta á æfingar hjá BH á sunnudögum klukkan 15:00-16:00 til að æfa sig fyrir mótið.


Keppt verður í einliðaleik og unified tvíliðaleik, fatlaður og ófatlaður saman. BH útvegar meðspilara fyrir þau sem vilja spila í unified tvíliðaleik.


Allir keppendur fá þátttökuverðlaun. Þátttökugjaldið er 2.000 krónur.


Skráningu lýkur sunnudaginn 8.nóvember. Félög þurfa að senda skráningar sinna iðkenda í síðasta lagi 8.nóvember á netfangið bh@bhbadminton.is. Í skráningu þarf að koma fram nafn, kennitala, keppnisgreinar og upplýsingar um getustig keppenda.


Upplýsingar um mótið veita

Anna Lilja (s. 8686361)

Sólrún Anna (s. 8691490)


Með vonum góða þátttöku.

Badmintonfélag Hafnarfjarðar



 
 
 

Recent Posts

See All
Evrópumót smáþjóða

Á morgun, miðvikudag ferðast íslenski hópurinn á Evrópumót smáþjóða sem fram fer í Færeyjum. Mótið hefst á föstudagsmorgun og er spilað til sunnudags. Íslenski hópurinn ferðast svo heim á mánudag. Það

 
 
 

Comments


©2017 BY BADMINTONSAMBAND ÍSLANDS. PROUDLY CREATED WITH WIX.COM

  • facebook
bottom of page