Fyrsta keppnisdegi á Meistaramóti Íslands 2025 lokið
- annamargret5
- Apr 24
- 1 min read

Meistaramót Íslands hófst kl 10 í morgun og leiknir voru yfir 80 leikir í Úrvalsdeild,1. deild og 2. deild samtals.
Veislan heldur áfram á morgun en þá verða 8 liða og undanúrslit spiluð.
Keppni hefst kl 16 með tvenndarleik í 1. og 2. deild.
Drífa Harðardóttir þrefaldur Evrópumeistari öldunga er að keppa og er komin í undanúrslit í tvíliða- og tvenndarleik!

Undanúrslit í Úrvalsdeild 25. apríl
Tvenndarleikur kl 16:30.
Davíð Bjarni Björnsson og Arna Karen Jóhannsdóttir TBR mæta Daníel Jóhannessyni og Sigríði Árnadóttur TBR.
Kristófer Darri Finnsson TBR og Drífa Harðardóttir ÍA mæta Róberti Inga Huldarssyni og Una Hrund Örvar BH.
Einliðaleikur kvenna kl 17:30
Gerda Voitechovskaja BH mætir Iðunni Jakobsdóttur TBR
Hrafnhildur Edda Ingvarsdóttir BH mætir Lilju BU TBR
Einliðaleikur karla kl 18:30
Daníel Jóhannesson TBR mætir Róberti Inga Huldarssyni BH
Róbert Þór Henn TBR mætir Gústav Nilsson TBR
Tvíliðaleikur kvenna kl 19
Gerda Voitechovskaja og Una Hrund Örvar BH mæta Örnu Kareni Jóhannsdóttur og Sigríði Árnadóttur TBR.
Drífa Harðardóttir ÍA og Snjólaug Jóhannsdóttir TBR mæta Hrafnhildi Eddu Ingvarsdóttur og Kötlu Sól Arnarsdóttur BH.
Tvíliðaleikur karla kl 20
Davíð Bjarni Björnsson og Kristófer Darri Finnsson TBR mæta Andra Broddasyni Eið Ísaki Broddasyni TBR.
Gústav Nilsson og Stefán Árni Arnarsson TBR mæta Daníel Jóhannessyni og Róbert Þór Henn TBR.
Við hvetjum alla til að koma í Gnoðavoginn og fylgjast með okkar besta badmintonfólki keppast um Íslandsmeistaratitilinn!
Fylgjast má með beinu streymi frá völlum 1-4 og verða hlekkjunum deilt inn á heimasíðuna þegar þeir verða klárir.
Allar upplýsingar um mótið, leiki og úrslit má finna á https://www.tournamentsoftware.com/tournament/3fee99e5-511c-4b01-9489-5e945f1276de/Matches
Comments