Hverjir verða Íslandsmeistarar í badminton 2025?
- annamargret5
- Apr 25
- 1 min read
Updated: Apr 26

Margir hörkuspennandi og flottir leikir fóru fram á öðrum keppnisdegi á Meistaramóti Íslands í TBR húsinu við Gnoðavog í dag.
Það er ljóst að splunkunýr Íslandsmeistari í einliðaleik karla verður krýndur á morgun.

Davíð Bjarni og Kristófer Darri eru komnir í úrslit í tvíliða- og tvenndarleik og gæti annar þeirra því mögulega verið krýndur tvöfaldur Íslandsmeistari á morgun.
Úrslit í 1. og 2. deild byrja kl 09 í fyrramálið og síðan taka við úrslit í Úrvalsdeild kl 13.

Úrslit í Úrvalsdeild hefjast kl 13
Tvenndarleikur
Davíð Bjarni Björnsson og Arna Karen Jóhannsdóttir TBR mæta Kristófer Darra Finnssyni TBR og Drífu Harðardóttur ÍA
Gerda Voitechovskaja BH mætir Lilju BU TBR
Róbert Ingi Huldarsson BH mætir Gústav Nilssyni TBR
Arna Karen Jóhannsdóttir og Sigríður Árnadóttir TBR mæta Drífu Harðardóttur ÍA og
Snjólaugu Jóhannsdóttur TBR
Davíð Bjarni Björnsson og Kristófer Darri Finnsson TBR mæta Daníel Jóhannessyni og
Róberti Þór Henn TBR
Öll að mæta í TBR í Gnoðavoginn á morgun og mynda góða stemningu á pöllunum!
Allar upplýsingar um mótið, leiki og úrslit má finna á https://www.tournamentsoftware.com/tournament/3fee99e5-511c-4b01-9489-5e945f1276de/Matches


Comments